Orlofsblað BHM

Í BOÐI FYRIR SJÓÐFÉLAGA Gerðir verða samningar við nokkur leiðandi þjónustufyrirtæki á ferðamarkaði og njóta sjóðfélagar góðs af því. LAUGARVATN FONTANA Sjóðfélögum bjóðast tveir fyrir einn af almennu gjaldi. Taka þarf fram í afgreiðslu að maður sé félagi í OBHM og gefa þarf upp fullt nafn og kennitölu. GJAFABRÉF HJÁ ÚTIVIST Gjafabréf sem gilda í ferðir sem auglýstar eru í ferðaáætlun. Ferðir bókast hjá Útivist í síma 562 1000 sjá nánar á www.utivist.is . GJAFABRÉF HJÁ FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS Gjafabréf gilda í ferðir sem auglýstar eru í ferða- áætlun Ferðafélagsins. Ferðir bókast hjá Ferða- félaginu í síma 568 2533, sjá nánar á www.fi.is . GJAFABRÉF Í FLUG Sjóðfélögum býðst að kaupa gjafabréf/flugsæti í flug hjá Icelandair, Air Iceland Connect og Flug- félaginu Erni (flugsæti) á bókunarvef OBHM. VEIÐIKORTIÐ OG ÚTILEGUKORTIÐ Sjóðfélögum býðst að kaupa kortin á bókunarvef OBHM. AFSLÁTTUR AF GISTINGU Sjóðfélagar geta keypt ferðaávísun í gistingu sem hægt er að nýta til greiðslu á fjölmörgum hótelum innanlands. Sjá nánari upplýsingar um það sem í boði er á bókunarvef OBHM (orlof.is/bhm) . 7 ORLOFSSJÓÐUR BHM 2021

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==